Tilkynningar

Auglżsing

Auglýsi eftir áhugasömu fólki  til að skrifa efni til að birta á síðunni!! 

Read more...
 
Heim arrow Sįrgręšsla
Sįrgręšsla PDF Print E-mail
Written by Gudny   
Wednesday, 17 October 2007

Á íslensku eru orðin wound og ulcer bæði þýdd sem sár. Hið fyrra vísar til bráðasárs sem myndast vegna ytra áreitis, til dæmis vegna slyss eða skurðaðgerðar, og grær oft án vandkvæða. Hið síðara er notað yfir sár sem nær ekki að gróa eða grær seint, yfirleitt vegna sýkingar eða sjúkdóms (Britanica Concise Encyclopedia, 2003). Hér verður ekki gerður greinamunur á því hvort um ræðir wound eða ulcer og aðallega fjallað um sár út frá orsök eða uppruna, sjá betur í kafla um flokkun sára.

Sárgræðsla er flókið ferli sem veltur á mörgum þáttum (Nelson og Dilloway, 2002). Aðalþættirnir eru þó tveir, annars vegar endurmyndun (regeneration) eða endurnýjun (replacement) á vef og hins vegar örmyndun (scar formation) (Ovington og Schultz, 2004). Flestar rannsóknir á sárgræðslu hafa verið gerðar á bráðasárum og í kafla um sárgræðsluferli verður umfjöllun miðuð við bráðasár. 

Sķšast uppfęrt ( Thursday, 18 October 2007 )
 
© 2010 saramedferd.org